22mars

Bíll til sölu

Hef til sölu:
Subaru Impreza GL 2.0
Árgerð 1997
Ekinn 182 þús. km.
5 dyra, station
Beinskiptur 5 gíra
4x4 drif, hátt og lágt drif
Rafmagn í rúðum og speglum
Sumar- og vetrardekk á álfelgum
4x50w geislaspilari sem styður Mp3 skrár
Skoðaður 07

Töluvert endurnýjaður, m.a:
Nýlegir demparar
Nýleg kerti
Nýlegir kertaþræðir
Nýr loftflæðiskynjari
Nýlegar öxulhosur
Nýjar felgurær (lokaðar, krómlitaðar)

Smurður og þrifinn reglulega

Óska eftir tilboði.
Skoða helst ekki skipti en það má prófa.

Myndir á public.fotki.com/karlhannes

Karl Hannes Sigurðsson
866-5588
haglaskot@hotmail.com



vill biðja fólk, sem hefur ekki áhuga á bílnum að sleppa öllum óþarfa kommentum við þessa færslu.






22. mars 2007 klukkan 23:11
Karl Hannes Sigurðsson
2 athugasemdir
15febrúar

www.myspace.com/karlhannes

http://myspace-295.vo.llnwd.net/00793/59/28/793368295_l.jpg

what the fuck ???
15. febrúar 2007 klukkan 19:11
Karl Hannes Sigurðsson
Engin athugasemd
11janúar

akureyri

sælir/sælar
Eitthvað minna að gera núna þangað til ég fer að sofa..;)
Ákvað að prófa að leigja mér herbergi hér á Akureyri..var ekki alveg að nenna þessum  endalausu "ámilliferðum" eins og ég kýs að kalla það. Sjáum til hvernig þetta fer.
já hvernig er þetta ? Held að þetta heiti Tryggvagata..allavegna bara rétt hjá VMA sem er fínt. Þetta er í kjallara á gistiheimili og hér leigja 3 aðrir. Hef ekki hitt þá ennþá en veit að einn þeirra er Jóel Mar. Þessi 4 herbergi deila svo með sér eldhúsi, þvottahúsi og 2x baðherbergjum. Er með rúm, fataskáp, 2x stóla, náttborð og lítið sjónvarp á einhverskonar standi. Svo kemur skrifborð hingað fljótlega. Held að þetta verði fínt.
Verð að vísu alls ekki lengi svona í fyrstu..kom í dag (fimmtudag) og gekk frá þessu. ætla að vera í nótt en kom svo heim eftir skóla á morgun..þannig að ef ég þarf ekki að gera neitt á morgun verð ég kominn heim fyrir 10 í fyrramálið því að VMA hefur þetta ekki eins og FSH. Fyrsti tími annarrinnar fer í sirka þetta: hér er kennsluáætlun, á þessari önn gerum við þetta og þetta...bless bless og búið. átti að fara í 6x40 mín verklegt á þriðjudaginn en var inni í korter ! snilld..
allavegana..fer í svona "fyrstatímaannarinnar" tíma á morgun og reikna með að hann verði stuttur.
Annars lýst mér betur á þessa önn en síðustu..held að þessi verði meira "krassandi".

2x kettir riðu um dagin á garðarsbrautinni, lesið allt um það á www.blog.central.is/hilmaosk

Mikki að tilkynna bíóferð í kvöld..stefnt á að sjá the pick of destiny..sem er víst með þeim kollegum jack black og hinum úr hljómsveitinni tenacious D (stafs.) 
Las vonda dóma um hana í morgunblaðinu um daginn og það verður forvitnilegt að vita hvort þeir standast
veit þó ekki hvort ég komi með einhverja "kvikmyndagagnrýni" hérna inn enda ekki sérfræðingur eins og vinur minn Dolluson. Hann kom einmitt með gagnrýni um daginn. þar (aðallega) rakkaði hann niður alls konar týpur af myndum, jafnt ársgamlar og 15 ára gamlar..gdr Miki ;)

11. janúar 2007 klukkan 22:24
Karl Hannes Sigurðsson
4 athugasemdir
09janúar

2007

mánudagskvöld, skóli á morgun...lítið að gera...best að blogga.
nýtt ár er gengið í garð, það gamla mun maður aldrei sjá aftur.
Best að gleyma sér aðeins og horfa um öxl.

árið er 2006:
Í byrjun árs vissi ég ekki hvar ég stóð. Hafði lokið mínu námi í FSH og var án atvinnu. Þetta reddaðist seinnipart janúarmánaðar þegar ég fékk vinnu á Víkurraf, þar sem ég fékk vinnu svona amk fram á vorið. Man eftir litlu markverðu þessa fyrstu mánuði ársins, maður mætti í vinnuna á morgnana, heim seinnipartinn og rúntur eða playstation hjá ásgeiri á kvöldin. Heissi í svipaðri aðstöðu, Mikki ennþá í skóla..."hehe", Nóri á eyrinni og Guðrún farin suður..aldrei fór ég suður..þ.e fyrr en ég fór út ! jú, í...uuu..maaaíí minnir mig fórum við sem útskrifuðumst árið 2006, úr FSH, til Benidorm (á Spáni fyrir þöngulhausana) og vorum þar í 2 vikur. Það var helvíti gaman bara, fín tilbreyting.
Fékk svo áframhaldandi vinnu á víkurraf og ákvað upp úr því að fara í skóla og læra þetta. Því miður er ekki boðið upp á iðnnám á Húsavík og því þurfti maður að skrá sig í VMA en jæja..vann restina af sumrinu, rúntur, playstation eða sá guli á kvöldin ;) Fórum á Norðfjörð um verslunarmannarhelgina..þangað fer ég aldrei aftur. þvílík og önnur eins leiðindi. Skrapp reyndar á Ak, á sunnudagskvöldinu sem var ágætt.
Sumarið leið og maður byrjaði í VMA..leist ekkert á þetta til að byrja með, þekkti engan sem var með mér í náminu en kannaðist nú við nokkra sem maður hitti á göngunum. Eyddi svipað miklum tíma sitjandi við eitthvað borð að gera ekki neitt, einungis að bíða eftir næsta tíma, og ég gerði í skólastofum því ég fór alltaf á milli með rútunni. Jú það var fínt að komast heim seinnipartinn, get ekki sagt annað en þessi bið...drottinn minn djöfull var það leiðinlegt ! en það stendur til að bæta úr þessu á þessari önn með því að leiga sér einhverja kitru, en sjáum til hvað verður.
Náði nú reyndar öllum prófunum. Ákvað að vinna út jólafríið sem var fínt, þetta leið andskoti hratt að vísu, vinna á milli hátíðanna líka en maður kvartar ekki yfir því.
Á mínu heimili var étin rjúpa á aðfangadagskvöld, enda eina sem blívar. Jólin eru að breytast, systkynin farin að gera þetta sjálf en amma og afi komin í staðin. Systir ömmu var hjá okkur líka. Sem þýddi að á aðfangadagskvöld var ég yngsti maðurinn við borðið, heilum 32 árum yngri en næsti maður !..sem var mamma !..fjör..en þrátt fyrir það fékk ég ekki mest af pökkum, sem er slæm þróun. við matarborðið ákvað ég að peppa aðeins stemmarann upp smellti því einum brandara á ömmu og sagði:
"Amma ! hvað hét pósturinn Páll eftir að hann fór á eftirlaun?!?"..amma hugsaði sig um í smá stund og sagði síðan: "pósturinn Páll". "HAHA PÁLL !!" sagði ég og bjóst við þvílíku argi og gargi úr hlátri...mamma flissaði aðeins, enda næstyngst...ég reyndar hló slatta. "ég get nú alveg sagt þér það að hann pabbi þinn verður ábyggilega kallaður siggi lögga í framtíðinni þó hann verði hættur í löggunni" sagði þá amma í hálfgerðum nöldurtón...akkúrat þá ákvað ég að þetta væri vonlaust langaði að skalla laufarbrauðið mitt...en það var of lítið. 
Áramót ! úff, skaupið lélegt maður..Eitt af mínum fyrstu verkum árið 2007 var að hella mér romm í klaka og harka til mikaels þorsteinssonar iðjuþjálfa í nýársteiti, þaðan var farið á baukinn og svo...uuu..já...heim. 

Þannig var árið í hnotskurn hjá mér..."piff ekki merkilegt" hugsa sumir...en það var ábyggilega miklu merkilegra en þetta..ég man bara ekki eftir því ;)
09. janúar 2007 klukkan 02:08
Karl Hannes Sigurðsson
7 athugasemdir
21nóvember

Tóbak getur haft mjög skaðleg áhrif á heilsu

Hvort sem menn heita Adebayor eða ekki, þá fannst mér viðbrögðin við glæstri mynd af Mikka Þorsteins hér að neðan, alveg ákaflega dræm. Einungis gott og gilt komment frá hinum vafasama flateying, Fannari Þór sem greinilega sá eitthvað við myndina. Þetta fékk mig til að efast um blogg hæfileika mína og var farinn að velta því fyrir mér að hætta þessu á tímabili, enda greinilega ekki til neins. En ákvað að skrifa amk eitt enn.

Er þetta blogg dæmi eins og að hætta að taka í vörina ? einfaldlega ekki hægt ?
Maður veltir fyrir sér tilgangnum en heldur alltaf áfram fyrir rest...
Ég er haldinn þeim leiðinlega kvilla að vera háður neftóbaki sem ég nota í efri vörina. Ekki hægt að venja sig af þessu, er að reyna það núna. komnir 2 dagar og löngunin er of mikil ennþá ! Hef tvisvar hætt í viku (var í útlöndum) en eiginlega bara ósjálfrátt byrjaði maður aftur þegar maður kom heim...
Kannski er ástæðan fyrir þessu að manni vanti ástæðu ? Er með ágætis ástæðu núna, peningaleysið er algjört...jú Elli ! ég á ekki krónu !!..en þá sníkir maður bara hjá einhverjum öðrum ! ekkert sem heldur í mann í því. Þ.e ef maður hittir einhvern sem á. Þannig að peningaleysið er ekki alveg nóg. Aðrar ástæður sem mér dettur í hug í augnablikinu:
*Kellingin vill þetta ekki...á ekkert svoleiðis. ruled out í mínu tilviki.
*Veikindi...þokkalega heibrigður hérna megin
*Þreyttur á þessu...art a grínast ?
*Dósin of dýr...myndi þá einhver reykja ?
*Óheilsusamlegt...myndi þá einhver reykja/drekka/borða nammi ???

Já þetta er pæling útaf fyrir sig. Er bara að vona að ég geti hægt og bítandi vanið mig af þessu.
Vill einnig þakka góð hvatningarorð frá vinum mínum í þessu átaki sem hafa verið á þessa leið:
*Sjénarinn
*Munt aldrei geta hætt þessu
*Villtu í vörina

Sé nú ekki betur en að "ástæða til að hætta nr. 1" þarna í listanum hjá mér sé sú skársta ? hvað finnst þér ?

Annars hef ég legið undir vissri gagnrýni að vera ekki barngóður. Afsannaði það í kvöld með því að fara út að moka í heilan klukkutíma með 2 litlum hérna í familíunni og brjálaðist ekki einu sinni ! tel það góðan árangur sem bendir til þess að ég verði gífurlega góður faðir í framtíðinni...þ.e eftir sirka 10 ár...ekkert að gera með svona lítinn öskurapa fram að því..

Stefni á að fara að taka nokkrar myndir af einhverju mismerkilegu og henda inná myndasíðuna mína sem er
http://public.fotki.com/karlhannes

þangað til næst ? 
ble..



21. nóvember 2006 klukkan 06:16
Karl Hannes Sigurðsson
9 athugasemdir
13nóvember

af háskólanema !

Mynd númer 2


Hvað varst þú að gera um helgina ????
13. nóvember 2006 klukkan 23:36
Karl Hannes Sigurðsson
3 athugasemdir
31október

Björn Bjarnarson

Góða kvöldið.
Best að hripa hér nokkrar línur.
Er aðallega að bíða eftir sjónvarpsþættinum "tekinn" með Auðunni (?) Blöndal eða Audda eins og hann kaus að kalla sig til að halda kúlinu.
Auðunn Blöndal, sem er sauðkræklingur uppalinn ef ég man rétt, ætlar þar að taka fyrir hann Ásbjörn Kristinsson/Kristmundsson/Kristjánsson. Oft kallaður hinu skrýtna nafni Bubbi Morthens. Auðunn gerði víst Ása litla alveg snar-hoppandi brjálaðann sem verðugt er að sjá.

Fréttir NFS í kvöld.
1. Danir eru asnar. Hefur greinilega sýnt sig. Ég hef að vísu alltaf vitað þetta og ásamt fleira góðu fólki. Danskur ritsjóri kallar alla íslendinga þjófa, skattsvikara ásamt því að tala illa um eyjuna okkar ásamt öðrum rógburði ýmis konar. Danmörk er ljótt, flatt land svona sirka jafn stórt og samankrumpaður vestjarðarkjálki sem er búið að troða einhverjum milljónum vitleysingja á. Og á meðan ég man, þeir tala ljótt tungumál....En þeir eru með flottar girðingar !
Haddna. Þá er maður búinn að svara fyrir sig í garð Dana. Mæli með að sem flestir prófi.

2. Kvennalandslið Íslendinga í knattspyrnu gróflega mismunað miðað við karlalandsliðið. Þessi frétt snýst líka um peninga. Kvennaliðið fær allt að 20 sinnum minni pjéning en kallarnir fyrir hvern leik. Held að stelpurnar þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu. Las á hinni rómuðu lygasíðu www.fotbolti.net að kvennalandsliðin væru að mestu rekin af tekjum frá karlalandsliðinu. Því það þarf að bíta í það súra eða ósúra epli, fer eftir hvernig fólk lítur á það, að áhuginn fyrir karlaliðinu er meiri. Sem fer greinilega ekki eftir árangri því kvennaliðið slysast nú alveg til að vinna einn og einn leik ! Gera ekki eitt jafntefli og lifa á því næstu 5 árin.
Er ekki kvennaboltinn líka frekar ný íþrótt hér á landi?  Hugtakið "kvennaboltinn" hefur kannski verið lengi til en er þetta ekki fyrst að ryðja sér til rúms núna nýlega? Það er að vísu ennþá þannig að það eru 2 lið í úrvalsdeild sem dóminera alltaf en þar gæti orðið breyting á á næstu árum. T.d stofnaði Völsungur almennilega kvennadeild í sumar og árangurinn glæsilegur!
Þannig að ef við snúum okkur aftur að efni fréttarinnar, þá held ég að áhugi á kvennaboltanum sé að aukast þannig að fleiri mæta á leiki, nöfnin verða stærri, fótboltinn á jafnréttisgrundvelli og allir glaðir eftir nokkur ár!

Einhver listanemi meig síðan yfir samnemanda sinn í listaháskólanum í borginni. Eðlilegt lið ? Hélt ekki.

Fleira gerðist ekki nógu merkilegt til að líta upp úr nýjasta Elko verðlistanum.

Vindum sæði í hross.
Um heglina varð ég vitni af því að það eru greinilega ekki einungis unglingstittir sem láta sig dreyma um þeirra draumabíl, og á meðan draumnum stendur monta þeir sig heiftarlega af þeim bíl sem þeir keyra hverju sinni við aðra til að létta þeim biðina eftir draumabílnum því þetta gera einnig fullorðnir menn. Auðvitað verða engin nöfn nefnd í þessari sögu sem hér kemur heldur munu þeir þrír aðilar sem koma sögunni við verða nefndir A, B og C
A: Eigandi fínnar Subaru bifreiðar með 2,5 litra vél, þokuljósum og öðrum aukabúnaði.Maður þessi hefur lengi dreymt um að eiga bifreið af gerðinni BMW. Svo skemmtilega vill til að návinur hans á bíl af þessari tegund og því er biðin eftir draumabílnum orðin erfið.
B: Ósköp hlutlaus maður sem persóna A segir
C: Eigandi Subaru bifreiðar með 2,0 litra vél, án þokuljósa og annarra slíkra þæginda.

Hér kemur sagan:
A við B: ,,Ég (A) og C eigum nákvæmlega eins bíla nema minn er með stærri vél og þokuljósum" Þess ber að geta að montið var í hávegum haft hjá A og tónninn í rödd hans eftir því.

Held að ég fari að kalla þetta gott.
En fyrst þetta!:

Eitthvað hefur verið gert að því að lygar og ærumeiðandi komment um mig hafa verið sett fram á ágætt blogg hjá ákveðnum aðila hér í bæ. Rétti hér með þessum aðila "gula spjaldið" ef ég get komist svo að orði. Rautt getur haft alvarlegar afleiðingar.

Og jú !
Áttu í vandræðum með Hözzlið ? Veistu ekki alveg hvernig þú átt að bera þig að?
Lestu og lærðu því að stór-hözzlerinn Bjarni Jónasson frá Héðinshöfða opnar sig og greinir frá leyndarmálum sínum í ýtarlegu viðtali við æsifréttamanninn Heiðar Hrafn Halldórsson.
viðtalið má finna á slóðinni    www.blog.central.is/gifsveggir


31. október 2006 klukkan 02:25
Karl Hannes Sigurðsson
9 athugasemdir
20október

Valgerður Sverris

Djöfull er maður góður bloggari ! var góðar 2 mín að finna uppá titli og datt ekkert betra í hug en þetta.
Ar eitthvað að frétta ? Svipað ? goderr...Rjúpnaveiðitímabilið allavegana byrjað, sem er snilld. Fátt skemmtilegra en að ganga til rjúpna á góðum degi. Skellti mér allavegana á skotvopnanámskeið um daginn þannig að maður er loksins orðinn löglegur í þetta. Sem er ekkert nema gott mál !
Eitthvað djamm um helgina ? Sumir (sumar frekar...) ætla að taka fim-fös-lau djamm. Hef nú ekki einu sinni gert svoleiðis óskunda ennþá enda heiðvirtur maður í samfélagi okkar mannanna..ehemm. En mér datt í hug að fara í Mývatnssveit með "mófó-unum" eins og ég kýs að kalla þá. Þetta er enn í skoðun en það er víst eitthvað dansiball, þar var hluti af mófó-unum sem lét vel af og ætla að mæta aftur, fyllri en nokkru sinni fyrr ! Þessir mófóar eru t.d Sigurður (kenndur við eina af fjölmörgum afurðum lauks), Sigdór (double cab) Mummi (sem hleypir fáum í stjörnuna sína) og fleiri góðir menn. Þetta gæti orðið snilld. Okkur vantar að vísu einhvern góðhjartaðan til að keyra okkur uppettir og þola okkur á leiðinni heim líka. Að vísu hætta á drepleiðindum líka en það er betra að vera jákvæður ! 
Aðrir ætla að fara á eyrina..ég er búinn að sjá leiðinlega mikið af þeim stað síðustu 2 mánuðina og langar eiginlega lítið að eyða megninu af helginni þar. Viðhorfið væri annað ef maður væri að leigja þar en svo er víst ekki.
Djammið ræðst svoltið af rjúpunni í mínu tilfelli..ef það verður ákveðinn rjúpnaveiðitúr á sunnudag verður náttúrulega ekkert djammað.

En er hvalveiðimálið orðið stærra en kjarnorkumál Norður-Kóreumanna ? Fór herinn vegna meintra áforma um hvalveiðar svo hann gæti bombað á landið síðar meir ? spurning...en í alvöru, það var einhver Breti í sjónvarpinu áðan, frekar pirraður yfir því að Íslendingar ætla að duggu-dugga út á sjó og skjóta nokkra hvali..er það nú ekki óþarfi ? Persónulega hef ég ekkert á móti hóflegum hvalveiðum, þ.e ef einhver not eru fyrir þetta. Hef ekki kynnt mér þetta mál nógu vel til að geta látið einhverja sleggjudóma falla en ég svosem sé ekkert á móti því að nokkrir hvalir séu skotnir á ári, svo lengi sem það er í hófi og þeim verði hagað þannig að þeir sem gera út á hvalinn á annan hátt, sumsé hvalaskoðanir, þurfi ekki að rekast á hvalveiðidallana í sínum túrum. Mig langar ekkert að fá hvalveiðidall hingað til hafnar með eitthvað sem hann skaut hér í flóanum fyrir framan nefið á 500 asíubúum sem hafa aldrei séð þetta áður..en hvað finnst þér?

gott í bili, ble
20. október 2006 klukkan 00:45
Karl Hannes Sigurðsson
10 athugasemdir
21september

Hafliði Óskars

Daginn, nenni þessu víst.
Var að velta einu fyrir mér..hver hefur ekki smá húmór fyrir úrgangslosun mannsins?Með öðrum orðum: kúk og piss húmor.
Held að allir hafi gaman af þessu, mismikið þó. Einhverjar gelgjurnar segjast fá klíju útaf þessu en ég held að það sé bara bara til að minna á gelgjustimpilinn.
Best að rifja upp nokkrar skemmtilegar fret sögur, Njótið vel !

1. Þessi gerðist fyrir nokkrum árum, ég og Nóri vorum heima hjá honum þegar honum dettur í hug að setjast á stofuborðið heima hjá sér (venjulegt viðar-borð) og sendir það svona líka svaðalega ! Hljóðið var eins og herþota í flugtaki ! ekkert smá sem marraði í kvikindinu !

2. Þessi gerðist fyrir stuttu, var í matarboði hjá bróður mínum, sem er söguhetjan í þessari, því hann ætlaði að setja eina laumu en úr varð þessi svaka bomba sem bergmálaði um alla Höfðabrekkuna. Skrýtið að enginn hló af þessu nema við bræður..

3. Þessi gerðist líka fyrir nokkrum árum síðan. Var með Mikka Þorsteins upp á golfvelli og vorum staddir á 5. teig. Ég átti (að sjálfsögðu) teiginn og stillti því upp á undan og Mikki sest á viðarbekk sem var þarna við teiginn. Ég munda kylfuna og byrja að sveifla en þegar ég er að klára bak-sveifluna heyrist hljóð, svipað og háhýsi að hrynja. Mikki að sendaða í miðri aftursveiflu ! Freturinn varði í svona 15 sekúndur, nóg fyrir mig til að líta upp og sjá hann, lyftandi annari á bekknum ! Gat einmitt ekki slegið fyrr en um 10 mín seinna vegna hláturskrampa.

4. Þessi gerðist líka fyrir löngu, kem labbandi í sakleysi mínu inn ganginn heima þegar ég sé ömmu sitjandi við eldhúsborðið sem á sama augnabliki lyftir annari og sendirann harkalega ! haha þetta var amma !!!

5. Þynnkuprumpið í túni er mér ávallt ofarlega í huga. Lenti í svaka djammi sem hafði alvarlega þynnku í för með sér daginn eftir. Um kvöldið er ég að verða góður og fór í tún. Labba inn í pool-stofu en þar þarf ég að senda það og að sjálfsögðu geri það ! en svo fyllist herbergið af fólki. Ég beið spenntur eftir fyrstu viðbrögðum sem voru einhvernvegin svona: "hvaða lykt er þetta??" stuttu seinna var ég aftur einn í herberginu, liggjandi uppá pool-borðinu í hláturskrampa og sáttur með sigurinn !.

6. Þessi gerðist í vinnunni fyrir stuttu. Var með Áka yfirmanni í Laugafisk. Fengum pítsu í hádegismatinn sem fór eitthvað illa í yfirmanninn því hann sendi það svo agalega, með tilheyrandi orgum og niðurrakki, að ég gat varla unnið næsta hálftímann eða svo ! ekkert eðlilega fyndið !

Ef þið eigið góða sögu, setjið það í komment
Og ef ykkur langar í subaru station, látið vita !

gott í bili, ble 
21. september 2006 klukkan 21:09
Karl Hannes Sigurðsson
8 athugasemdir
05september

eitthvað vit í þessu ?

Já maður ætlar að nenna þessu.
Ákvað að prófa þetta þar sem ég, tölvan mín og blog.central.is erum ekki alveg sammála um hlutina akkúrat þessa stundina
Verður bara að koma í ljós hvernig maður stendur sig hér !
Annars setti ég inn einhverja könnun um hvernig þeim örfáu lesendum mínum lýst á þetta, endilega tjáðu þig þar.

Eitthvað að frétta ?
Er allavegana byrjaður í skóla. stúdentinn byrjaðu í menntaskóla..piff það er ekkert asnalegt ! er allavegana að vesenast í rafvirkjanámi í VMA. Líst ágætlega á þetta enn sem komið er. Framtíð mín í því er allavegana ekki jafn brothætt og sú í blogginu..

Mikki er annars mættur í kellingarnar í iðjuþjálfanáminu í Háskólanum á Akureyri

Heizzi er alsæll í málaranum, kominn á samning, nýjan bíl, með einkaþjálfara og alles !

Jæja, best að fara á rúntinn eða eitthvað..
05. september 2006 klukkan 02:18
Karl Hannes Sigurðsson
11 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Er eitthvað vit í þessu

Innskráningar kubbur